Leður hefur alltaf það yfirbragð að vera sexý, svalt, rokkað jafnvel og frekar dýrt…
…og mér finnst það alltaf fallegast þegar það er sem mýkst.
Allir geta klæðst leðri, bara spurning um að balansera þetta rétt og velja flík við hæfi. Og ef þú átt í vandræðum með að finna jólagjöf þá máttu vita að leðurhanskar eru flestum kærkomnir.
Á myndunum má sjá það sem koma skal á næsta ári og leðrið, ásamt PVC er þar mjög áberandi.
Hönnuðir eins og Alexander McQueen hafa alltaf notað leður í sinni hönnun enda mikill ‘dýraáhugamaður’…Svo má sjá fleiri töff flíkur eftir hina og þessa… Fallegast finnst mér átfittið á stelpunni í græna lúðrarsveitafrakkanum. Hrikalega svöl…
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.