Sænska leikkonan og Íslandsvinurinn Noomi Rapace setti þessa glæsilegu mynd af sjálfri sér inn á Facebook í dag en lét það ekki fylgja sögunni hvaða Elle riti hún situr fyrir hjá eða hvort það er komið út.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem hún tengist tískuheiminum því Noomi var einnig mjög glæsileg í ELLE blaði sem kom út vorið 2011 en þá var hún við kynningar á myndinni um Promtheus. Hún hefur jafnframt sést á tískuvikum víða um heim og hefur þá tekið sér sæti á fremsta bekk eins og stórstjarna er von og vísa.
Noomi er búin að “meika það í Hollywood” eins og sagt er en í næsta mánuði er von á myndinni Dead Man Down þar sem hún leikur á móti hönkinu Colin Farrell.
Það verður spennandi að sjá þessa mynd og fylgast með hinni íslenskumælandi Noomi á komandi misserum. Spurning hvort Baltasar Kormákur reyni ekki að fá hana bara í eitthvað hlutverk fljótlega?
[youtube]http://youtu.be/W_GKcGLL69M[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.