Bella er dugleg að grúska í bókum sínum um allt á milli himins og jarðar. Í dag komst ég að þessu sem mér finnst í raun stórmerkilegt. Vissir þú…
- …að Marilyn Monroe, þekktasta kynbomba tuttugustu aldarinnar, viðurkenndi fyrir vinkonu sinni að þrátt fyrir að hafa átt þrjá eiginmenn og fjöldann allan af elskhugum, hefði hún aldrei fengið fullnægingu?
- …að samkvæmt eigendum erótískra verslana er kirsuberjabragð það vinsælasta þegar keypt eru æt nærföt? Súkkulaðibragð er minnst keypt.
- …að hjá aztekum til forna var avocado talið svo kynferðislega örvandi að hreinum meyjum var bannað að koma nálægt ávextinum?
- …að hæsta hlutfall samkynhneigðar af spendýrum jarðar er hjá karlkyns leðurblökum?
- …að skegg karlmanna vex hraðast meðan þeir stunda kynlíf?
- …að fyrir hverja venjulega vefsíðu eru fimm klámsíður?
- …að fullnæging svína endist í 30 mínútur? (batnar þeim þá ekki af flensunni?)
- …að læknisfræðileg rannsókn sem gerð var í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum sýndi að fólk sem stundar kynlíf einu sinni til tvisvar í viku bætir með því ónæmiskerfið?
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.