Leikkonan Nicole Kidman lítur stórglæsilega út í ítalska vogue en allar myndirnar af henni eru í svarthvítu.
Sá sem tók myndirnar er hinn þekkti tískuljósmyndari Peter Lindberg. Hann nær að draga fram kvenleika Nicole á mjög þokkafullan máta og nú virðast svarthvítar myndir vera að detta í tísku aftur hvort sem um er að ræða portrett eða tískuljósmyndun.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.