Það er sjaldgæft að hjónaböndin í henni Hollywood gangi upp en hjónaband þeirra Nicole Kidman og Tom Cruise var enn eitt hjónabandið í Hollywood sem fór í vaskinn.
Hinsvegar segir leikkonan að hún hafi aldrei verið jafn hamingjusöm og nú en í dag er hún gift tónlistarmanninum Keith Urban.
„Allt er öðruvísi, einfaldara. Ég er mun öruggari með sjálfa mig og rólegri. Það er engin spurning að síðustu ár hafa gert mig mun þroskaðari og sannfærðari um það sem ég trúi á,“ sagði Kidman við Le Matin.
Og ekki skaðar það heldur að eiga frábæran eiginmann.
„Hann er frábær! Hann skilur eftir ástarbréf í hvert einasta skipti sem við erum í burtu frá hvort öðru,“ sagði hún.
„Það er ótrúlega gaman að fá þannig athygli frá manni sem elskar þig.“
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.