Leikarinn Neil Patrick Harris er forsíðufyrirsæta OUT Magazine, ófeiminn við að sýna á sér kroppinn og smella á sig varalit.
Neil er í sannkölluðu glimmerbaði í myndaþætti fyrir tímartitið og smellir á sig varalit og blæs hverju, jú glimmeri framan í myndavélina.
Það eru tímamót á leikaraferli Neil en þátturinn sívinsæli How I Met Your Mother er senn á enda og verður lokaþátturinn sýndur þann 31.mars næstkomandi en í honum hefur leikarinn farið á kostum sem hinn óforskammaði Barney Stinson.
Leikarinn þarf þó ekki að örrvænta enda er nóg að gera hjá honum og næst á dagskrá er hlutverk á Broadway í leikritinu Hedwig And The Angry Inch en þar fer hann með aðalhlutverkið.
Kíktu á Neil í glimmerbaði og beran að ofan hér fyrir neðan. Elegant og lekker!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig