Kim Kardashian ákvað nýlega að skella ótrúlega krúttlegri mynd af litlu North West á Instagram, mögulega til að þagga niður í fólki sem heldur því fram að raunveruleikastjarnan sé aldrei með barninu sínu.
Kannski hefði hún betur sleppt þessu því þrátt fyrir að sú stutta bræði öll hjörtu og sé ótrúlega falleg eins og mamma sín, þá datt ‘aðdáendum’ Kim strax í hug að hún væri komin út fyrir öll mörk með hégómann. Jú, glöggum aðdáanda sýndist jú sem Kim hefði ‘vaxað’ augabrúnir litla barnsins fyrir myndatökuna… kannski til að gera hana líkari sjálfri sér.
Nú er ekki gott að segja til um hvort þetta er satt eða ekki. Svona kríli breytast hratt en ef satt reynist þá er Kim auðvitað frekar tæp týpa, svo ekki sé meira sagt.
Hvað heldur þú? Er skvís að vaxa stubbinn eða þroskast barnið bara svona. Ræðum það á Facebook.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.