EsNail naglasnyrtistofan er staðsett í Los Angeles og þangað fara þær ríku og frægu gjarnan og láta skreyta á sér neglurnar.
Kelly Osbourne, Brandy og Kylie Jenner eru meðal þeirra sem fara reglulega á EsNail og láta snyrta á sér neglurnar og borga skildinginn fyrir en neglurnar á EsNail kosta um 120 dollara eða um 14.000 íslenskar krónur.
Naglameistari EsNail, Miho Okawara, er einstaklega hæfileikarík og hún virðist geta gert hvað sem er. Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi um neglur sem Okawara hefur gert, myndirnar koma af Instagram EsNails.
Skrautlegt og skemmtilegt.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.