Hér má sjá hina ofurfögru Natalie Portman myndaða af David Slijper fyrir febrúar heftið af breska Elle.
Það er greinilegt að með hækkandi sól verður tískan afar kvenleg með pífum og blúndum, grátt og svart verður þó áfram áberandi í bland við ljósa liti og stóra skartgripi.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.