Hér eru gamlar myndir frá rauða dreglinum af nokkrum þekktum einstaklingum sem eru eiginlega ótrúlegar, og ótrúlega skemmtilegar!
Finnst bara mjög mikilvægt að deila þessu með ykkur Pjattrófum! 🙂
Hér sjáum við Brad Pitt árið 1988, þá var hann 25 ára en það var einu ári eftir að ferill hans sem leikari hófst.
Emma Watson árið 2001, 11 ára skvísa en á sama ár kom út fyrsta Harry Potter myndin út.
Hér er Britney Spears árið 1999, 18 ára og aldeilis krúttleg. Þessi er tekin tveimur árum eftir að hún fór að syngja með Jive Records.
Charlize Theron – árið 1998 en þá var hún aðeins 23 ára. Sama ár og hryllingsmyndin Children of the Corn III: Urban Harvest kom út þar sem hún fór með sitt fyrsta hlutverk.
Drew Barrymore árið 1982 þá aðeins 7 ára gömul snúlla. Sama ár kom út myndin um geimveruna E.T. þar sem Drew lék hina krúttlegu Gertie.
Cameron Diaz árið 1994 – 22 ára. Hún lék í myndinni The Mask þetta sama ár.
Angelina Jolie árið 1990 – 15 ára stelpuskott. Hér er hún með föður sínum Jon Voight sem er einnig leikari.
George Clooney árið 1995, 34 ára en á þessum tíma var hann að leika í læknaþáttunum ER.
Johnny Depp árið 1987, 24 ára – eldist aldeilis vel. Á þessum tíma var hann að gera frábæra hluti í þáttunum 21 Jump Street.
Kirsten Dunst árið 1994, aðeins 12 ára krútt. Þetta sama ár vakti hún athygli fyrir leik sinn í myndinni Interview with the Vampire.
Matt Damon og Ben Affleck, árið 1997. Matt er hér 27 ára og Ben 25 ára. Hér eru þeir saman á rauða dreglinum enda sama ár og Good Will Hunting kom út.
Scarlett Johansson, árið 1998 – 14 ára dúlla, bíómyndin The Horse Whisperer kom út þetta ár þar sem Scarlett vakti mikla athygli.
Myndir fengnar af Bright Side
Sylvía er einkaþjálfari, yin jóga kennari, heilsumarkþjálfi og eigandi Optimal Health sem er andleg og líkamleg þjálfun fyrir konur. Sylvía býr á Spáni ásamt syni sínum og Oreo kisunni þeirra.