Kim Alsbrooks er stelpa frá Ameríku, hún er myndlistakona sem fer frumlegar leiðir í sinni myndlistarsköpun…
…Hún málar meðal annars á RUSL. Nýjasta serían hennar inniheldur gömul málverk; 18 alda andlitsmyndir sem hún málar svo aftur á gamlar dósir, pappaglös, flöskur og fleira.
Serían heitir ´White Trash´eða ´Hvítt Rusl´ sem á ansi vel við. Þessi pía er algjör snilli, fekar fyndið að sjá svona flottar myndir af fólki í ótrúlega flottum fötum með fullkomið hár á einhverju ógeðslegu rusli.
Meira frá Kim Alsbrooks á heimasíðunni hennar hér: Kim Alsbrooks
Smellið á myndirnar fyrir neðan til að skoða þær stærri:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.