Í gallerí Ekkisens í Bergstaðastræti mun fara fram áhugaverð listmessa næsta miðvikudag en hún verður haldin í boði listakonunnar Katrínar Ingu Jónsdóttur Hjördísardóttur.
Í gær fór fram opnunarathöfn en á miðvikudaginn, 9. mars kl. 20:00, verður listmesssa ásamt listamannaspjalli og svo næsta sunnudag kl. 15:00 verður lokaathöfn.
Með Listmessunni gefur Katrín Inga okkur tækifæri til að koma saman og tilbiðja listina. Sunginn er listsálmur, predikað og farið með svokallað listvor til að viðhalda trú okkar á listfyrirbærið. Listmessa endurspeglar að meðal annars þann fáránleika sem einkennir trúarbrögð oft á tíðum.
Listmessa er gjörningaverk sem hefur verið í gangi frá árinu 2009 en þá leit hún fyrst dagsins ljós á sýningu í Kling&Bang galleríinu á föstudegi langa.
Eftir það hefur Katrín Inga ferðast með hana víða um heim en er nú kominn tími til að endurtaka athöfnina hér heima í Ekkisens. Hér er Ekkisens á Facebook.
Listin getur bjargað heiminum!
Katrín reynir yfirleitt að fella gildi listarinnar með verkum sínum en um leið vill hún auka vægi hennar. Hún reynir að færa listina nær áhorfandanum með því að koma verkum sínum til skila í almannarými eða með einlægum hætti. Einlægnin, sem virkar oft sem kaldhæðni, gerir verk hennar dulúðleg og óráðin en stundum mjög auðlesin. Katrín telur listina geta bjargað heiminum og reyndar finnst henni það vera skylda listarinnar.
„Listin er eina vonin okkar til hins betra lífs”, segir Katrín.
Katrín endurvinnur flesta hugmyndir sínar með því að útfæra þær á margskonar vegu og á ólíkum stöðum. Hún rannsakar hugmyndir sínar og þróar þær í fjölbreytileika miðlana og rýmisins, vegna þess að hún telur hugmyndir í sjálfu sér geta verið svo margt annað en bara eitt listaverk. „Möguleikar á úfærslu hugmynda eru óendalegir.”
Heilaþvottur margskonar
Katrín hóf sjálfstæða listköpun sína með svokölluðum skrímslum sem hún skilgreinir sem týndar hugsanir eða eitthvað órætt sem býr innra með okkur en sem fær ekki að komast út.
Katrín fór í kjölfarið að vinna í ákveðinni hugmynd um hvatningarfyrirbærið sem hún hefur unnið með í ólíkum verkum síðan þá. Katrín rannsakaði hvernig við hvetjum okkur sjálf áfram með sjálfshjálparefni og í samhengi við það fór hún að rannsaka hversu auðvelt það er hægt að heilaþvo fólk með misgáfulegum upplýsingum.
Því fannst henni alveg kjörið að heilaþvo áhorfandann með jákvæðum lýsingarorðum til hans/hennar. Katrín hefur gengið í hús og gefið listaverk eftir sjálfa sig og notar reyndar iðulega verk eftir sig sem sinn eigin gjaldmiðil, því hún telur listaverk vera traustasta gjaldmiðilinn.
Katrín hefur gengið inn í verðbréfafyrirtæki og selt verk eftir sig sem eina traustustu fjárfestingu sem til væri. Katrín sagði starfsmönnum þar að það væri ekki hægt að tapa á því að kaupa verk eftir hana á aðeins 500 kr. Allir keyptu að minnsta kosti eitt ef ekki tvö verk eftir hana.
Katrín hefur einnig sett verk sín á útsölu, hún hefur selt jólakort til styrktar íslensku þjóðinni og hún hefur mjólkað sig með rafmagnsmjaltavél til stuðnings fyrirburum og veikum ungabörnum. Katrín reyndi að selja góðærisbíl sinn á sýningu í Kling og Bang til að endurspegla ástandið í íslensku efnahagskreppunni.
Baðst afsökunar á því að bera ábyrgð á hruninu
Katrín hefur beðist afsökunar og viðurkennt í myndbandsskilaboðum að hrunið hafi verið henni að kenna. Hún hefur endurtúlkað málverkið „Ópið“ í 45 mínútna hljóðlausu ópi til stuðnings skrílnum gegn ákæruvaldinu. Katrín hefur tilbeðið listina í formi sjálfsfróunar í tileinkun sinni til Nýlistasafnsins. Katrín hefur skrifað bæn til listarinnar aftan á póstkort sem virkar sem bréf til ástvinar… (skrifað 2011)
Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir (b. 1982) útskrifaðist með MFA gráðu í myndlist frá School of Visual Arts árið 2014. Katrín er Fulbright styrkþegi 2012 og hlaut námstyrk frá sjóði Guðmundu Andrésdóttur árið 2013. Hún er einnig útskrifuð með BA gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands árið 2012 og BFA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2008. Katrín hlaut viðurkenningu frá Listasjóði Dungals árið 2012 og síðasta einkasýning hennar var í Nýlistarsafninu árið 2013.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.