Desember eintakið af W Magazine inniheldur þennan flotta og vetrarlega myndaþátt…
…Það er ítalski ljósmyndarinn Paolo Roversi sem á heiðurinn að þessum fallegu myndum. Ég mæli með að þið skoðið hann betur hér, en hann hefur verið að taka virkilega flottar myndir sem eru oftar en ekki mjög dulafullar og skrítnar.
Þessi tiltekni myndaþáttur fjallar um einskonar sirkus-fjölskyldu, í þessari fjölskyldu er meðal annars módelið Lindsey Wixon sem hefur verið nokkuð áberandi undarfarið.
Fínt og fallegt!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.