Rakst á auglýsingu frá Moet kampavíninu og hreifst af myndinni en það er leikkonan Scarlett Johanson sem er fyrirsætan. Myndatakan var í höndum þeirra þekktu og virtu Mert Alas and Marcus Piggott.
Kjólarnir eru meðal annars frá Donna Karan, Givenchy, Christian Dior og skórnir frá Dior. Skartið frá De Beers og litirnir í myndunum eru hrein og bein fullkomnun. Förðunin er algert æði – ótrulega falleg.
Það er greinilega ekki leiðinlegt að vera Scarlett Johanson.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.