Það eru eflaust margir sem að láta sig dreyma um sumar, sól og stutta kjóla. Þessi myndaþáttur úr breska Vogue hefur upp á allt þetta að bjóða og meira til…
…Myndirnar tók ljósmyndarinn Javier Vallhonrat og módelið er hin 22 ára gamla Suvi Koponen en hún er frá Finnlandi.
Tékkið á þessum litríku myndum ef ykkur hlakkar til sumarsins. Flottir kjólar, himinháir hælar við háa sokka og frábært skart í nammilitum.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.