Skartgripahönnuðurnir frá Made by 3 frumsýndu nýja línu sína í nýrri og glæsilegri verslun Leonard í Lækjargötu síðastliðið fimmtudagskvöld.
Hulda Hákonardóttir, Telma og Teresa Tryggvadætur skipa hönnunarteymið Made by 3 en þær hafa það að leiðarljósi að hanna fallega og öðruvísi skartgripi sem henta öllum konum við mismunandi tækifæri. Við hönnun sína nota þær Swarovski kristalla og perlur ásamt blóðsteinum.
Leðurarmböndin þeirra hafa notið mikilla vinsælda en þau eru úr strúts- og kálfaleðri skreytt með kristöllum og keðjum.
Kíktu hér á nokkrar myndir af gripunum þeirra ásamt myndum úr teiti sem haldið var í tilefni nýju línunnar.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.