Ég rakst á þennan frábæra og ævintýralega myndaþátt í desember eintakinu af rússneska Vogue…
…Það er unga fyrirsætan Ashley Smith sem að prýðir þennan konunglega myndaþátt í svakalegum múnderingum frá til dæmis Atelier Versace, Valentino Haute Couture og Agent Provocateur.
Ljósmyndarinn Sharif Hamza er maðurinn á bak við þessar flottu myndir en ég mæli með að þið kíkið á hans fyrri verk: Sharif Hamza
Ótrúlega fallegur myndaþáttur þar sem allt (módelið, förðunin, fötin, hárið og skórnir) smellur svona líka vel saman:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.