Kate Moss hefur vakið feikna eftirtekt á forsíðu brazilíska Vogue og þar skartar hún nýju fugla tattoo á efri parti bossans.
Ljósmyndarinn er hinn víðfrægi tískuljósmyndari Mario Testino.
Eins og flestir aðdáendur vita er hún nýtrúlofuð kærasta sínum , breska tónlistarmanninum Jamie Hince. Það má því búast við stórkostlegu brúðkaupi sem slær hinu konunglega jafnvel við og sumir tala um að hjónavígsla Kate Middleton og Williams hafi verið upphitun fyrir brúðkaup Kate Moss.
Og já, Kate Moss er ansi fljót að taka við sér því þessi mynd af henni með brúðarslör og blómvönd birtist aðeins degi eftir brúðkaup Kate Middleton og Williams prins, svona rétt til að minna Breta og heimsbyggðina á að hún rúlar og það sé aðeins ein Kate í London.
“Don’t mess with Kate,” segi ég bara.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.