Alltaf er tímaritið Muse jafn flott og myndaþættir þeirra valda sjaldan vonbrigðum. Í nýjasta eintaki Muse magazine eru þessar svakalegu fallegu myndir af einmanna brúður sem situr heima og bíður eftir brúðgumanum…
…Það er þýska fyrirsætan Julia Stegner sem sést á þessum myndum, annað hvort berbrjósta eða í himneskum hvítum flíkum með slör og blómvönd.
Það kom mér smá á óvart að sjá hana í þessum myndaþætti því ég hef einhvernvegin vanist því að sjá hana ferska á Victoria’s Secret pöllunum eða í auglýsingum. En hér er hún frekar ´edgy´ og kúl.
Ótrúlega flott myndataka hjá ljósmyndurunum Daniele & Iango og stíleseringin er frábær:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.