Þetta er engin önnur en hótelerfinginn, glamúrgellan og partýpinninn hún Paris Hilton… jújú, myndirnar komu mér einnig á óvart þar sem ég hreinlega þekkti hana ekki í fyrstu!
Hótelerfinginn frumsýnir sem sé algerlega nýtt útlit fyrir tímaritið V-Magazine. Paris er klædd fatnaði frá þekktum hönnuðum Louis Vuitton, Yohji Yamamoto, Alexander McQueen, Calvin Klein, Junya Watanabe og Azzedine Alaia -Ótrúlega flottar myndir af Paris – allt önnur.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.