Jason Lee er án efa mjög skapandi faðir, hann er ljósmyndari að mennt en hefur þó aðalega sérhæft sig í að taka myndir í brúðkaupum. Þegar hann er ekki í vinnunni þá virðist hann skemmta sér mjög vel með því að eiga góðar stundir með dætrum sínum og útfærir leiki þeirra yfir í skapandi myndatökur.
Ljósmyndir hans eru vel útfærðar. Þetta virðist hörkuvinna hjá Jason Lee þar sem hann stíliserar, föndrar búninga og útfærir einnig bakgrunninn eftir því hvað gengur á. Dætur hans tvær eru fyrirsæturnar og bregða þær sér á leik með pabba sínum í hinum ýmsu hlutverkum.
Lifandi og skemmtilegar myndir hjá pabbanum.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.