Sjötugasta Golden Globes hátíðin fór fram um helgina í Kaliforníu…
og að sjálfsögðu skelltu stjörnurnar sér í eftirpartý á Beverly Hills hótelinu eftir viðburðinn. Í húsinu voru nokkur mismunandi partý en á þakinu voru það stjörnur á borð við Anne Hathaway, Hugh Jackman, og Amanda Seyfried sem slettu úr klaufunum.
Nokkrum hæðum neðar var það liðið úr Girls þáttunum sem fögnuðu á meðan Jodie Foster og Quentin Tarantino djömmuðu í sal á jarðhæðinni.
Hér eru nokkrar myndir af stuðinu!
Myndir fengnar að láni frá Vogue.com.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.