Eliot Pauline Sumner er tvítug stelpa sem er betur þekkt sem Coco Sumner eða I Blame Coco. CoCo Sumner er frá Englandi og hefur verið að gera tónlist sem er kannski ekki skrítið því hún er dóttir tónlistamannsins Sting…
…Þessi stelpa er mega töffari sem hefur einnig unnið sem módel. CoCo Sumner gaf út sína fyrstu plötu í sumar sem er frekar hress en hún heitir The Constant. Í einu laginu (Caesar) af þessari fyrstu plötu hennar fær hún hjálp frá hinni sænsku Robyn og gerðu þær flott myndband við það lag. Mæli með að þið tékkið á þessari plötu og myndböndunum sem hún hefur gefið út.
Smá girl crush í gangi hérna.
Hérna eru tvö myndbönd frá henni sem eru MEGA flott:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.