Við Pjattrófur fengum á dögunum að kynnast töfrabrúsunum frá Trevor Sorbie en sá er þekktur sem einn fremsti hárgreiðslumeistari Breta (þó víðar væri leitað).
Frá Trevor Sorbie kemur mjög fjölbreytt lína af allskonar hárvörum en hverri og einni er ætlað að kalla fram þau áhrif sem þú sækist eftir. Hvort sem það er slétt hár, þykkara, ljósara, dekkra nú eða krullaðara.
Við gerðum nokkur kennslumyndbönd fyrir lesendur okkar en í þessu fyrsta sérðu hana Guðnýju pjattrófu frá náttúrulegar krullur í hárið sitt.
Til þess notar Egill m.a. Beautiful Curls sjampó, og stautinn framan á hárblásarann sem flestar eiga uppi í skáp.
Ótrúlega smart og einfalt og eitthvað sem margar eiga eflaust eftir að vilja prófa!
__________________________________________________
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=csJztCgrfNo[/youtube]
Meira hér á Facebook um Trevor Sorbie vörur og möguleika
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.