Ég held ég sé ekki það sem kallast mikil barnakerling og ekki á ég tvíbura en þetta myndband bræddi samt alveg hjartað…
Þessir litlu bræður voru teknir með keisara. Hér er ljósmóðirin að baða þá og þeir átta sig ekkert á því að nú eru þeir komnir í þennan stóra skrítna heim okkar. Faðmast bara og kúra þar til þeir byrja að rumska og það kemur smá rifa á augun. Ferlega sætt, góð og róleg byrjun á lífi hjá þessum litlu nátengdu mannverum 🙂
[youtube]http://youtu.be/PmQaE-5dMQU[/youtube]
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.