Ég rakst á þetta stutta og skemmtilega myndband, tekið af fólkinu sem er að spássera á götum New York borgar.
Ég datt svo inn í gleðina að mér fannst ég vera komin til New York á sjálfa tískuvikuna en það er gott að láta hugann reika og leyfa sér að dreyma svolítið -enda næst stemmning borgarinnar og sést fatastíll fólksins afar vel.
Þekktum andlitum úr tískuheiminum bregður einnig fyrir…
En allavega stórskemmtilegt myndband fyrir alla sem elska stórborgir, fjölbreytt mannlíf og tísku.
[vimeo]http://vimeo.com/15613194[/vimeo]
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.