Ég bíð alltaf spennt eftir nýjum tónlistarmyndböndum frá Rihönnu – eftir tískunni, strákunum og hárinu!
Ég varð hinsvegar fyrir svolitlum vonbrigðum með nýjasta myndband hennar við lagið Stay. Myndbandið er nú samt fallegt – Rihanna skartar sínu fegursta, nakin í baðkari þar sem húðflúr hennar fá að njóta sín.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=JF8BRvqGCNs[/youtube]
…en hver er þessi Mikky Ekko? NAMMI NAMM!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.