Stundum er lífið erfitt. Sérstaklega þegar maður er lítið letidýr. Mér líður oft svona, til dæmis í ræktinni á mánudögum þegar æfingarnar eru manni gersamlega ofviða…
… og öll helgin hefur kannski farið í lifnaðarhætti letidýra. Það er að segja ef letidýr gætu pantað sér pizzu og komist í ríkið. Ah! Eeeehhh! Eeh, íhhh, AHH! Skríð eftir gólfinu í Laugum og skamma heiminn. Ah! Mánudagur! Ah!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=5Tdokh1KYuQ[/youtube]
Já, og stundum er maður svona hreinlega allann daginn, nema bara inní sér. Eh!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.