Það var stjörnustílistinn Monica Rose sem gerði þetta skemmtilega myndband í samvinnu við LEAF (living, eating and fashion). Þetta myndband kennir þér og gefur þér hugmyndir um hvernig er flott að blanda saman mismunandi skartgripum…
…Í myndbandinu er til dæmis stungið upp á því að blanda saman nokkrum hálsfestum í mismunandi lengd og nota gamalt og nýtt skart saman. Sumum finnst alveg ómögulegt að blanda saman gulli og silfri en greinilega er Monica Rose ósammála. Hjá henni er allt leyfilegt sýnist mér…og ég fíla það!
Kíktu á myndbandið fyrir neðan;
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=_47_ILpjo7s[/youtube]Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.