Mjólkursamsalan hefur, í samstarfi við auglýsingastofuna ENNEMM, hafið auglýsingaherferð til að vekja athygli á góðum kostum mjólkur undir hinu sígilda slagorði „Mjólk er góð“.
Sú nýstárlega leið var valin að draga fram jákvæð áhrif mjólkur með krítarteikningum. Dana Tanamachi, leturhönnuður og krítarlistamaður, lagði MS lið við hönnun herferðarinnar, en hún er orðin heimsþekkt fyrir krítarverk sín og hefur unnið fyrir mörg af stærstu vörumerkjum heims, til að mynda Nike, Target ofl.
Sjónvarpsauglýsingar voru gerðar í sama stíl af framleiðslufyrirtækinu Sítrusi en þær sýna hvernig mjólkin kemur við sögu í daglegu lífi okkar alla ævi. Sjónvarpsauglýsingarnar skarta lagi sem samið er af Medialux með texta eftir Þórdísi Helgadóttur, textasmið hjá ENNEMM og Jóhann Sigurðarson, leikari, syngur.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=i06F01tJpZM[/youtube]
Tökum nú lagið!
Hraustur kroppur geymir heilbrigða sál.
Hugsandi anda með vitsmuni og mál.
Með stoðirnar rammar sem stuðlaberg,
sterkbyggða vöðva og traustan merg.
Viðlag
Þú fyllir glas af mjólk sem er hressand’ og hrein.
Hleður inn kalki í tennur og bein.
Tennur og vöðva og bein og blóð.
Það er bersýnilegt hvað mjólkin er góð.
Í æsku fékkstu mat sem matur var í.
Magnað að allt lífið býrðu að því.
Ef ofurfæða er þínar ær og kýr
opnaðu fernu einn tveir og þrír.
Viðlag endurtekið
Þú fyllir glas af mjólk sem er hressand’ og hrein.
Hleður inn kalki í tennur og bein.
Tennur og vöðva og bein og blóð.
Það er bersýnilegt hvað mjólkin er góð.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.