Hér er nýtt myndband frá Lanvin tískuhúsinu. Það eru meðal annars Karen Elson og Raquel Zimmermann sem dansa hér (einstaklega luralega) og sýna okkur haust og vetrar línuna.
Ágætlega skemmtilegt myndband þó að lagavalið hefði mátt vera betra. Í lokin sést svo Alber Elbaz stíga nokkur spor en það er maðurinn á bak við Lanvin. Like á kápu og hatta átfittin, mjög 70’s og kúl!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=S3N8QZTsZic[/youtube]
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.