Það er vitað mál að fólk á vesturlöndum endurnýjar fataskápa sína á ógnarhraða en sem betur fer gefa margir „úrelt“ föt til þeirra sem minna mega sín.
Svo er ekki óalgengt að föt gangi kaupum og sölum á netinu, í Rauða Kross og öðrum ‘vintage’ búðum, eða á mörkuðum eins og Kolaportinu. Sumar vinkonur halda jafnvel skiptimarkað sín á milli og skiptast þá á fatnaði sem passar þeim ekki eða þær eru einfaldlega orðnar leiðar á flíkinni. Það sem er í tísku einn daginn getur dottið úr tísku þann næsta og missir því gildi sitt fyrir eiganda flíkunnar.
Hér er skemmtilegt myndband með líflegri götutískunni í New York. Þarna er allskonar fólk, bæði í nýjum og notuðum fatnaði og mér fannst ég líka sjá yngri útgáfu af Yoko Ono, ófríska og með kúluhatt – og hvaða manneskju dytti í hug að ganga um götur New York með risavaxinn páfagauk á öxlinni?
[vimeo]http://vimeo.com/26431862[/vimeo]Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.