Ímyndaðu þér að vera þreytt eftir langt flug, þú sækir töskuna þína, gengur í gegnum tollahliðið og færð svona flottar móttökur.
Allt í einu ert þú þátttakandi í skemmtilegri auglýsingu. Þetta er klárlega ein sú flottasta auglýsing sem lengi hefur verið gerð, myndbandið er stútfullt af söng, gleði, tárum og fólki -sem er mjög hissa!
Símafyrirtækið T-mobile gerði þessa snilld:
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.