„Í kjólinn fyrir jólin”!
Svona hljómaði slagorðið góða sem átti að hvetja okkur til að komast í flott form fyrir hátíðarnar. Nú er ekki seinna vænna að byrja á því verkefni, enda vel liðið á október og svo eru það nóv og des framundan með öllu sínu stússi og stressi.
Hér eru frábærar bossaæfingar sem hún Margrét Gnarr kennir okkar að gera í ítarlegu myndbandi. Fylgdu þessum aðferðum og við lofum að jólakúlurnar þínar munu lyftast upp fyrir veislurnar framundan. Þær eiga að minnsta kosti eftir að koma vel út í kjólnum!
Svo er ekki úr vegi að benda á flotta Facebook leikinn hennar Margrétar. Fjarþjálfun frá henni ætti að virka stórkostlega vel ef þú vilt koma þér í flott form sem fyrst. Hvort sem er bikiníform eða pre-jólaform 😉
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.