Stundum líður mér eins og langömmu minni. Held ég sé rosalega líbó og frjáls svo rekst ég allt í einu á eitthvað sem gerir mig svo kjaftstopp að ég treð skotthúfunni upp í mig og ét hana.
Það gerðist einmitt rétt í þessu þegar ég horfði á jógakennarann og heilarann hana Ágústu Kolbrúnu hérna útskýra fyrir okkur stelpunum hvernig á að heila píkuna sína og ekki nóg með það… bera kynfærasafa á fótleggina til að lokka menn í kynlíf!
Nei, ég meina… ha? Varstu að segja eitthvað?
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.