Þessar myndir eru mikið uppáhald hjá mér. Ég er sjúk í gull augabrúnirnar!!
Við makeup by kjerúlf fengum til liðs við okkur þessa stórglæsilegu stelpu sem heitir Elín Rós Ásmundsdóttir og fórum í fjöruferð. Það var ískalt úti svo við stoppuðum ekkert sérstaklega lengi að taka myndir en ég er sjúklega ánægð með útkomuna. Vona að þið verðið jafn hrifin af þeim og ég er.
ps. ekki vera hrædd að senda mér skilaboð ef þið hafið einhverjar spurningar – ekb8@hi.is
Stjórnmálafræðingurinn Emilía Kristín er 25 ára stelpa, fædd og uppalin á Seltjarnarnesi. Hún er í sambúð og móðir tveggja dásamlegra stelpna. Emilía hefur brennandi áhuga á ljósmyndun, hönnun, tísku og barnatísku og elskar allt sem glitrar. Hún er með útlandasýki á háu stigi og er helst með 2-3 utanlandsferðir í kortunum. Uppáhalds staðurinn hennar í Reykjavík er Te&kaffi í Austurstræti og hún elskar Pippó! ✌