Eins og lesendur Hollywood-pressunnar vita fannst einkadóttir Whitney Houston meðvitundarlaus í baðkari fyrir rúmri viku.
Á selebbasíðunni PageSix stendur skrifað að fjölskylda stelpunnar ætli sér að taka vélina úr sambandi í dag en þann 11. febrúar 2012 lést móðir hennar í baði á hótelherbergi.
Fjölskyldan á að hafa tekið þessa sameiginlegu ákvörðun en það var amma hennar, Cissy, sem kom með þessa hugmynd. Allt frá því að móðir hennar lést hefur Bobbi Kristina verið heltekin af dauða hennar og átt mjög erfitt andlega.
Hún hefur ekki sýnt nein batamerki frá því að hún var lögð inn á spítala í lok síðasta mánaðar en það var eiginmaður hennar, Nick Gordon sem kom að henni meðvitundarlausri í baði.
Lögreglan rannsakar málið en grunur leikur á að eiginmaðurinn hafi lagt á hana hendur áður en hann hringdi í 911 og tilkynnti um ástandið. Einnig fundust eiturlyf á heimili þeirra.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.