Frábærar fréttir fyrir litla menn sem einnig eru ríkir og frægir. Hávaxnar konur líta þá hýru auga og þeir eiga nokkuð góðan sjéns á að krækja í flottar skvísur. Þessir litlu karlar geta ef til vill ekki horft í augun á elskunni sinni ef hún er á háum hælum og stundum jafnvel ekki þótt hún sé í flatbotna skóm. Þeir láta það hins vegar ekkert á sig fá – og eru flestir hamingjusamlega giftir eða eiga flotta kærustu.
Ættu hávaxnar glæsilegar konur að finna sér mann í sama útlitsflokki – eða halda áfram að horfa niður á elskuna sína? Ég hafði ekki pælt í þessu fyrr en ég hitti einn lítinn sjálf, minn Mr. Zara Kids.
Við hittumst á Thorvaldsen á laugardagskvöldi rétt undir miðnætti. Þar kemur hann til mín þessi myndarlegi maður, sest hjá mér og býður mér upp í drykk. Hann var sérstaklega andlitsfríður og í afskaplega smart frakka… jafn fáránlegt og það nú er elska ég menn í fallegum frökkum.
Herra fríður og í flottum frakka sat þarna hjá mér og ég var spennt. Þar sem ég sat í stól áttaði ég mig ekki á hvað Mr. Handsome var fíngerður og lágvaxin maður. Það var ekki fyrr en við stóðum upp og gerðum okkur tilbúin fyrir að kíkja heim í eftirdrykk og kaffi að það runnu á mig tvær grímur… Úps….hann náði mér rétt í augnhæð!
Í stað þess að láta mig hverfa þarna ákvað ég að gefa manninum sjéns og við tókum leigubíl heim til hans. Að sjálfsögðu fór hann úr frakkanum og fyrir tilviljun verður mér litið inn í hálsmálið á flíkinni þar sem stóð letrað: “Zara Kids” !!! Maðurinn alltaf í barnafatadeild Zöru í Smáralind, ææææææi-!
Tom Cruise, Rod Stewart, Richard Gere og Zarko Frakklandsforseti… allt eru þetta litlir menn sem eiga flottar kærustur og konur sem yfirsjá hæð þeirra …. fyrir aðra kosti. Ég var ekki svo örlát á sjálfa mig… heldur reimaði á mig skóna og hljóp af stað heim.
Ég dreg línuna við barnafatadeildina.
Hér eru svo myndir af frægum og ríkum töppum og stórglæsilegum betri helmingum þeirra:
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.