Þær leiðinlegu fréttir ganga nú um slúðursíðurnar að eitt heitasta parið í tískubransanum Marc Jacobs og Lorenzo Martone séu hættir saman.
Það er sjaldgæft að sjá karlmenn með eins flottan fatastíl og þá stráka. Þeir voru ávallt óaðfinnanlegir til fara og svo samhæfðir að jafnvel skeggsnyrting þeirra var í stíl.
Lorenzo sannaði að það eru ekki bara fagrar konur sem koma frá Brasilíu og hann þorði að klæða sig öðruvísi. Hann var örlítið skondinn með axlaböndin á ská og í stuttbuxna-jakkafötum – en þó svo ofursvalur.
Flott fyrrum par á ferð og leitt að heyra að ekkert verði af fyrirhuguðu brúðkaupi þeirra. Mig var farið að hlakka til að sjá hverju þeir myndu klæðast á stóra deginum 😉
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.