Nú veit ég ekki með þig en mér þykir þetta borð alveg hrikalega svalt og myndi stolt hafa svona í stofunni.
Það er eitthvað íslenskt við þetta þó það sé ekki íslenskt en borðið er hannað af japananum Ayodhya og var sýnt á alþjóðlegri húsgagnasýningu í Singapore á dögunum.
Mosinn er ekki lifandi heldur þurrkaður og því þarf ekkert að hafa áhyggjur af því að vökva og svona. Einstaklega fallegt!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og þoli ekki arfa i görðum (miðaldra). Hef ólæknandi áhuga á heimildarmyndum og norrænum sakamálasögum og fæ kikk út úr því að fara á allskonar skrítin námskeið. Ég er óhemju forvitin og nýt þess að miðla og deila því sem ég sé og upplifi með öðrum. Til dæmis hér, – með þér.