Stundum tek ég tímabil þar sem ég verð tryllingslega sjúk í avókadó og borða það með næstum því öllu.
Þetta tímabil fer að nálgast ef marka má viðbrögðin sem munnvatnsframleiðsla mín sýndi þegar ég sá þessa mynd hérna á the greatist. Má ég heyra amen?!
Taktu sneið af heilhveiti naan brauði, pólarbrauði eða álíka flötu brauði. Skelltu í ristina og smyrðu svo með maukuðu avókadó.
Mér finnst æðislegt að kreista smá sítrónu og dreifa ögn af einhverju unaðslegu salti yfir. Steiktu svo eitt egg og settu ofan á. Til að gera þetta ögn meira spennó má bæta við tómötum, smá klettasalati eða jafnvel pínu fetaosti.
Frábær bröns, eða morgunmatur ef þú ert þessi alternatíva týpa sem hefur smá tíma aflögu. Algjört kjams!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.