Leikarinn Morgan Freeman er eldhress þó hann sé kominn fast að áttræðu en hann segir galdurinn á bak við gleðina vera kynlíf.
Morgan, sem er tvígiftur og skilinn, segir að heilbrigð kynhvöt sé það sem haldi honum ungum en yngri konur láta hann reglulega vita af því að hann sé enn með’etta.
Þegar hann var spurður að því hvers vegna hann væri svona unglegur svaraði sá gamli: “P***y.”
“Ég hélt ég væri alveg á toppnum þegar ég var fimmtugur. Lífið var þægileg sigling og ég hafði góðan meðvind í bakið. Á fertugsárunum var lífið spennandi því mér gekk svo ótrúlega vel í mínu fagi. Samkvæmt minni reynslu þá verður þetta alltaf bara betra og betra.”
Morgan hressi!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.