Royal Extreme er íslenskt merki sem hefur heldur betur slegið í gegn en slagorð þeirra er More is More, less is bore!
Vor/sumarlínan 2011 frá Royal Extreme er að mínu mati algjört meistaraverk! Ég er sérstaklega ástfangin af fléttursokkunum með kögrinu. VERÐ eiginlega bara að eignast þá!
Hönnuðurinn á bakvið merkið heitir Una Hlín Kristjánsdóttir, algjör snillingur hér á ferð!
Myndirnar segja allt sem segja þarf og taktu líka sérstaklega eftir hárinu en það er Dagný vinkona okkar á Salon Veh sem sá um það.
Sjúklega flott.
Myndirnar tala sínu máli…
Verslun Royal Extreme er staðsett í Bergstaðarstræti 4.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.