MOOD Make Up School hefur skapað sér nafn sem einn sá fremsti í tísku-ljósmynda- og sjónvarpsförðun á Íslandi.
Skólann reka þær Díana Björk Eyþórsdóttir, förðunarmeistari og viðskiptafræðingur og Eygló Ólöf Birgisdóttir förðunarmeistari. Ásamt þeim kenna margir góðir kennarar við skólann sem eru allir miklir reynsluboltar í förðunarheiminum en í skólanum eru notaðar vörur frá MAC Cosmetics sem skemmir ekki fyrir!
Meirihluti nemenda sem útskrifast hafa úr skólanum starfa við förðun í dag og hafa látið mjög vel af náminu en það einkennist af gæðum og fagmennsku.
Sjálf get ég gefið MOOD mín bestu meðmæli en þaðan útskrifaðist ég árið 2011 og hef verið að vinna við förðun síðan. Einnig tók ég airbrushnámskeið þar eftir útskrift en þær bjóða einnig upp á þann möguleika fyrir lærða förðunarfræðinga.
Ef þú hefur áhuga á förðun þá legg ég til að þú kynnir þér námið hjá MOOD Make Up School á þessari síðu og skoðaðu einnig þetta flotta myndband sem var að koma út.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=2pHwr8zhzf0[/youtube]
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com