Monica Rose er stílisti starfandi í Los Angeles. Monica Rose hefur getið sér nafns í Hollywood meðal annars sem stílisti hinnar frægu Kardashian fjölskyldu og þáttarins The Daily 10 sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni E!…
Monica Rose segir stílistastarfið vera erfitt og mjög stressandi oft á tíðum en að hún elski það samt, það sem henni finnst best við starfið er að geta hjálpað viðskiptavinum sínum að líða vel með sjálfan sig.
Hún segir engan dag í vinnunni vera eins, allir eru þeir mismunandi en alltaf spennandi, það sem felst í starfi hennar sé meðal annars að klæða fólk fyrir ´rauða dregilinn´, stílisera myndatökur og sjónvarpsþætti og einnig að hjálpa stjörnunum að versla í fataskápinn sinn.
Það sem kom henni almennilega á kortið var að hún stíliseraði Kardashian systurnar upp á nýtt og skapaði flottari lúkk fyrir þær, og það verður að viðurkennast að þær systur eru mun flottari eftir að þær réðu Monicu Rose sem stílista sinn. Monica Rose segir að það sé virkilega gaman að stílisera Kim Kardashian af því að hún sé svo fjölbreytt; hún getur klæðst töffaralegum fötum einn daginn og glamúr-stelpu fötum þann næsta og kemst alveg upp með það.
Monica Rose heldur uppi bloggsíðu, þar birtir hún oft myndir af því sem hún er að vinna að eða bara af því sem henni finnst flott og sniðugt, þið getið skoðað bloggsíðuna hennar hér.
Smellið á myndirnar til að stækka þær:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.