Þar sem ég er með alvarlega þráhyggju af svölu og kisu Miu Miu línunni varð ég ástfanginn þegar ég sá þessar myndir.
Ingunn er ung stelpa sem heldur uppi blogginu wardrobe-wonderland ásamt tveim öðrum. Ég fjallaði um bloggið fyrir stuttu síðan.
Hún teiknaði þessar gullfallegu myndir af þessum fallegu listaverkum! Hæfileikarík stelpa, langar að hafa allar þessar myndir uppá vegg, sérstaklega þar sem ég veit að ég mun aldrei eignast par af þessum elskum.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.