Allar pjattrófur sem horfa á Gossip Girl eiga sér eina uppáhalds ‘slúðurstelpu’
Blair er þessi fágaða og snobbaða ‘upper east-side’ stelpa. Serena er svolítið sexý en samt fáguð í klæðnaði. Jenny er litli rokkarinn og Vanessa er litaglöð og hippaleg.
Þær eru allar mjög ólíkar í klæðnaði og það er oftast ein þeirra sem höfðar mest til okkar. Mín uppáhalds er Vanessa. Mér finnst hún alltaf svo flott og öðruvísi til fara.
Miss Selfridge hefur nú hannað línu þar sem hver flík fær innblástur sinn af einni slúðurstelpu. Ég er mjög hrifin af öllum flíkunum og gæti alveg hugsað mér að eignast þær allar.
Línan er fáanleg á www.missselfridge.com og kosta kjólarnir frá 8000 og uppí 12.000 kr. sem er alls ekki svo slæmt fyrir fallegan kjól.
XOXO
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.