Leitin að æskubrunninum er algeng í glysborginni en fræga fólkinu (sumum allavega) leiðist ekki að fara undir hnífinn eða í sprautuna.
Sumar stjörnurnar eru nánast óþekkjanlegar og hefðu kannski frekar átt að sleppa því að fara í lýtaaðgerð. Margar hreinlega eldast við aðgerðirnar eða eru svo strekktar í framan að þær geta ekki einu sinni brosað.
Að sjálfsögðu er þetta ákvörðun hvers og eins en stundum er hægt að fara yfir strikið og margir segja að fólk hreinlega ánetjist því að fara í slíkar aðgerðir þegar það byrjar. Fyrirsætan Janice Dickinson er til dæmis orðin gjaldþrota vegna þess að hún hefur farið í svo margar lýtaaðgerðir án þess að hafa efni á því.
Dæmi hver fyrir sig en hvað það er sem fær fólk til þess að fara í slíkar aðgerðir verður seint skilið, ætli að stjörnurnar sjái eftir aðgerðunum?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig