Ofurfyrirsætan Miranda Kerr þarf ekki að hafa áhyggjur af því að hafa ekki nóg að gera þrátt fyrir að vera hætt sem Victoria’s Secret fyrirsæta.
Miranda er með sína eigin lífrænu snyrtivörulínu sem nefnist Kora en fyrirsætan er mjög lífræn í sínum lífstíl og borðar bara hreinan mat og notar lífrænar vörur.
Fyrir myndatökuna var Miranda ber að ofan og fór einnig í brú í bikiní á ströndinni. Rosa liðug eftir alla jógatímana. Miranda skellti þessum myndum á Instagram síðuna sína en hún er afar dugleg að setja myndir af því sem hún er að gera á þeirri síðu.
Það er alveg deginum ljósara að hollt, hreint mataræði og jóga gerir gott fyrir kroppinn hennar Miröndu!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig