Hin eldhressa fyrrum barnastjarna Miley Cyrus ætlar að taka fullan þátt í klámfestivali sem haldið verður í NYC seinna í þessum mánuði.
Cyrus kemur fram í stuttmynd sem heitir Tounge Tied en þar leikur hún aðalhlutverk.
Að sögn aðstandanda hátíðarinnar verður Miley nakin í myndinni, fyrir utan svart límband sem er yfir geirvörtunum.
Miley hefur ekki haldið aftur af sér með að koma nakin fram upp á síðkastið enda fengu hömlurnar að fjúka um leið og hárið þegar hún hætti að vera fröken Hannah Montana. Hún er mjög umdeild og meðan sumir elska hana eru aðrir sem þola ekki þetta flipp. Engu að síður þykir hún það áhugaverð að um hana eru kenndir kúrsar í virtum háskólum í Bandaríkjunum og hommaheimurinn er búinn að skipta guðmóðurinni Madonnu út fyrir litla flippköttinn.
Simon Leahy, sem sér um þessa klámhátíð, segir að Miley sé í raun hætt að vera bara tónlistarkona: „Hún er að þróast yfir í að vera nútímalistakona,“ sagði hann í viðtali við New York Post.
Leikstjóri myndarinnar heitir Quentin Jones en á hátíðinni, sem fer fram 27. feb- 1.mars verður hægt að skoða verk eftir fólk sem er að byrja í klámbransanum sem og rótgróna fagmenn. Ahemm.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.